Matseðill fyrir seinnihluta ágúst

Nú er ágúst hálfnaður og nýr matráður kominn til starfa en það er Lilja Líndal Aðalsteinsdóttir. Hér fyrir neðan má nálgast matseðil fyrir síðustu tvær vikur ágústmánaðar. matseðill 19. -30. ágúst   

Skóladagatal 2019-2020

Skóladagatal 2019 -2020 er tilbúið og hægt að nálgast hér fyrir neðan. Skóladagatal 2019-2020 

Skipulagsdagur 20. ágúst

Þriðjudaginn 20. ágúst er skipulagsdagur í Garðaseli og leikskólinn lokaður þennan dag. Dagurinn verður að mestu nýttur til undirbúnings á skólaárinu og samráði með starfsfólki skólans en einnig verður 2 klst fræðsluerindi frá Greiningarstöðinni.&...

Aðlögun nýrra barna

Nú er aðlögun nýrra barna í Garðaseli hafin og gengur vel. Inn á Lónið koma 17 ný börn og eitt inn á Holt. Við bjóðum börn og foreldra velkomna til okkar.

Myndir í Karellen aðgengilegar foreldrum

Búið er að virkja leið fyrir foreldra til að sækja myndir af börnun þeirra sem eru í kerfi Karellen.  Foreldrar fara inn á sitt svæði í Karellen, velja myndir og þar koma fram allar myndir sem eru af börnunum í kerfinu. Foreldrar geta hakað v...

Kynningarfundur fyrir aðlögun í ágúst

Þriðjudaginn 11. júní kl: 18.00-19.00 verður kynningarfundur með foreldrum barna sem koma í aðlögun í ágúst. Hlökkum til að hitta hópinn og vonum að sem flestir eigi þess kost að mæta. Njótið hvítasunnuhelgarinnar og eigið ljúfar samverustundir

Lokið við ráðningar fyrir skólaárið 2019 -2020

Leikskólinn auglýsti laus störf fyrir skólaárið 2019 -2020 og hefur verið ráðið í þau. Lilja Líndal Árnadóttir kemur í stöðu matráðs eftir sumarlokun. Sólveig Rún Jónasdóttir kemur aftur til starfa eftir árshlé og þá mun Valgerður Valgeirsdóttir e...

Dagatal, fréttabréf og matseðill í júní

Við mánaðamót endurnýjast upplýsingagögn sem skólinn útbýr og deilir til foreldra. Foreldrar hafa þegar fengið þessi gögn send í tölvupósti en geti líka nálgast þau hér fyrir neðan. dagatal fréttabréf matseðill 

Sumargleði foreldrafélags í dag

Foreldrafélagið býður börnum og fjölskyldum í Garðaseli til sumarhátíðar í skógræktinni í dag. Stundvíslega kl: 16.00 hefst leiksýningin um Karíus og Baktus sem börnin elska og á eftir verður boðið upp á grillaðar pylsur og meðlæti. Vonum að sem f...

Nýr aðstoðarstarfsmaður á Vík

Þann 29. maí sl. kom til starfa í Garðasel Arnar Már Kárason, fyrrum nemandi leikskólans. Nú er hann á vegum Vinnuskólans og verður hjá okkur fram að sumarlokun. Arnar Már er 17 ára og verður aðstoðarmaður á Víkinni til að byrja með. Við bjóðum ha...