Matseðill, dagatal og fréttabréf

Júnímánuður er genginn í garð og góða veðrið lék við okkur í dag. Við mánaðamót endurnýjum við ýmis upplýsingagögn og hafa foreldrar fengið þau send heim í tölvupósti en geta einnig nálgast þau hér fyrir neðan. dagatal júní fréttabréf júní...

Heimkoma úr Ölveri

Það var mikið fjölmenni sem tók á móti elstu börnunum þegar þau komu heim úr útskriftarferðinni í Ölver. Fánar og blöðrur settu svip á móttökuna ásamt faðmlögum, feimni og gleði.  Mjög vel heppnuð ferð með börnunum, sem gistu í eina nótt, fór...

Lambaferðin að Bjarteyjarsandi

Farið var með alla árganga nema þann elsta í lambaferðina að Bjarteyjarsandi þar sem börn og kennarar nutu góðrar móttöku hjá ábúendum. Farið var í fjárhúsið og lömbunum klappað og gefin mjólk að drekka úr pela. Lömb fæddust á meðan börnin voru og...

Heilsuskokkið í maí

Föstudaginn 11. maí var síðara heilsuskokk skólaársins en þá fóru nemendur og kennarar á svæðið við Akraneshöllina og skokkað var hringinn í kringum höllina. Fyrir hvern hring var gerður kross á handarbak barnanna til að hvetja þau áfram og halda ...

Útskrift elstu barna

Útskrift elstu barna var í gær að viðstöddu miklu fjölmenni. Börnin buðu til skemmtunar í sal Grundaskóla en þau höfðu undirbúið atriði með kennurum sínum ; söng, dans og myndband þar sem þau sögðu í h...

Sumarkaffið

Í gær var Sumarkaffið í Garðaseli en það er fjáröflun foreldrafélagsins. Opið hús var frá kl: 15.00-17.00 og lögðu foreldrar til meðlæti á kaffihlaðborð sem fjölmargir gestir fengu að njóta. Takk fyrir, kæru foreldrar.

Sumarfrí barna liggur fyrir

Nú hafa allir foreldrar skilað inn sumarfríum barna sinna og skólalokum elstu barnanna. Ljóst er að mikill meirihluti barnanna fer í 4 vikna leyfi og þarf að púsla því og 5 -6 vikna sumarleyfi starfsmanna saman. Einhverjar breytingar geta orðið á ...

Dagatal, fréttabréf og matseðill í maí

Nú er maí genginn í garð og vonandi verður veðrið betra þegar líður á mánuðinn en í dag snjóar á okkur. Hér fyrir neðan má nálgast upplýsingagögn fyrir maí-mánuð. dagatal  fréttabréf  matseðill