Gleðilega jólahátíð

Nú þegar jólahátíðin gengur í garð sendum við börnum, fjölskyldum þeirra og öðrum vinum okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsældar á nýju ári.

Jólahreyfistund

Myndir úr jólahreyfistundinni okkar eru komnar í myndasafnið hjá Lóni

Jólakveðja

Kæru foreldrar og börn Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Takk fyrir skemmtilega samveru í vetur og njótið jólahátíðarinnar. Bestu jólakveðjur Ásta, Ragnhildur, Guðbjörg, Erna, Rúna, Gugga, Lára Dóra og Magga

Jólakveðja

Kæru foreldrar og börn Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Takk fyrir góðar samverustundir á líðandi ári. Jólakveðja Hafrún, Gulla, Ragnheiður, Heiða og Karen.        

Ágóðinn af flöskusöfnun í bankann

Í morgun fóru nokkrir Víkarar með ágóðann af flöskusöfnunni í bankann og lögðu hann inn á reikning SOS-barnaþorpanna. Ágóðinn af söfnuninni voru rúmar 18.000 kr og voru það stoltir og ánægðir krakkar sem luku síðasta hlutanum af verkefninu.  

Rauður dagur og helgileikur

Fimmtudaginn 17. desember var Rauður dagur í Garðaseli og allir mættu í einhverju rauðu. Jólalegt var að líta yfir skólann þennan dag. Litlu-jólin voru fyrir hádegi og hingað mættu sex kátir sveinar sem dönsuðu með okkur og sungu. Víkin sýndi helg...

Bókasafnsferð

Myndir frá bókasafnsferð 2011 árgangsins á vík eru komnar inn í myndasafnið.  

Aggapallur

Lónarar fóru í gönguferð niður á Aggapall með heitt kakó og piparkökur í yndislegu veðri. Myndir af ferðinni eru inn á myndasíðu Lóns.

Helgileikur Víkara á Rauðum degi

Víkarar sýndu helgileik á Litlu - jólunum í gær. Í hópnum eru margir orðnir læsir og tóku nokkrir að sér að lesa jólasöguna og var frábært að hlusta á þau. Allir höfðu hlutverk í jólasögunni fyrir utan að syngja jólasönginn. Hér má sjá myndasýning...

Vegleg gjöf foreldrafélagsins

Foreldrafélag Garðasels færði skólanum veglega gjöf í vikunni. Gjöfin innhélt 2 gítara, annan sem hægt er að tengja við hátalara, töskur og aðra hluti fyrir hljóðfærin. Við færum foreldrafélaginu kærar þakkir fyrir hlýhuginn og þessa góðu gjöf.