Gleði og fjör á búningadegi

Það var mikið fjör og gleði á búningadeginum sem var í tilefni af 28 ára afmæli leikskólans þann 1. september. Dans- og söngstund fyrir hádegi, pizzuveisla í hádegismatnum og afmæliskaka í síðdegishressingu. Fjölbreyttir búningar og náttföt þennan...

Að sækja barn og loka hliði

Af gefnu tilefni eru foreldrar minntir á að láta starfsmenn deilda alltaf vita ef barn er sótt þegar það er úti í garði. Þannig komum við í veg fyrir áhyggjur ef eitthvert barn vantar, leit hefst og skýringin er þá gjarnan sú að barnið sé farið. Þ...

Búningadagur

Föstudaginn 30.ágúst ætlum við að hafa búningadag í leikskólanum þar sem leikskólinn á 28 ára afmæli 1.september. Börnin mega koma í allskonar búningum s.s. íþróttabúningum, náttfötum og bara það sem er til heima fyrir.

Aðlögun að klárast

Þessi mynd hér fyrir neðan lýsir nemendahópnum í Garðaseli vel. Yngstu börnin koma sem sprotar inn og vaxa síðan og dafna í leik og starfi eftir því sem árin þeirra líða. Aðlögun yngstu barna er að klárast, sum eru brött en önnur þurfa enn faðm fo...

Skipulagsdagur 20. ágúst

Þriðjudaginn 20. ágúst er fyrsti skipulagsdagur skólaársins og er leikskólinn lokaður þennan dag. Dagurinn verður nýttur til að klára skipulag skólaársins og skipulag deilda. Þá fáum við fræðslu um Down Syndrome sem Greiningarstöðin verður með.

Matseðill fyrir seinnihluta ágúst

Nú er ágúst hálfnaður og nýr matráður kominn til starfa en það er Lilja Líndal Aðalsteinsdóttir. Hér fyrir neðan má nálgast matseðil fyrir síðustu tvær vikur ágústmánaðar. matseðill 19. -30. ágúst   

Skóladagatal 2019-2020

Skóladagatal 2019 -2020 er tilbúið og hægt að nálgast hér fyrir neðan. Skóladagatal 2019-2020 

Skipulagsdagur 20. ágúst

Þriðjudaginn 20. ágúst er skipulagsdagur í Garðaseli og leikskólinn lokaður þennan dag. Dagurinn verður að mestu nýttur til undirbúnings á skólaárinu og samráði með starfsfólki skólans en einnig verður 2 klst fræðsluerindi frá Greiningarstöðinni.&...

Aðlögun nýrra barna

Nú er aðlögun nýrra barna í Garðaseli hafin og gengur vel. Inn á Lónið koma 17 ný börn og eitt inn á Holt. Við bjóðum börn og foreldra velkomna til okkar.