Aðlögun að klárast

Þessi mynd hér fyrir neðan lýsir nemendahópnum í Garðaseli vel. Yngstu börnin koma sem sprotar inn og vaxa síðan og dafna í leik og starfi eftir því sem árin þeirra líða. Aðlögun yngstu barna er að klárast, sum eru brött en önnur þurfa enn faðm foreldra, þannig er nú bara lífið. Enn eiga starfsmenn eftir að koma inn og 1. september verða allir komnir til starfa og skipulag skólastarfsins getur þá hafist af fullum krafti. Nú er komið að helgarfríi og megið þið njóta daganna ykkar og samveru saman