Ársskýrsla 2014-2015

Eftir hvert skólaár er unnin ársskýrsla sem inniheldur samantekt um helstu þætti í starfsemi skóla. Ársskýrslan er mikilvægur þáttur í varðveislu sögunnar og gaman er að flétta í gegnum þessar skýrslur undanfarinna ára, margt sem rifjast upp.

Elstu börnin í hjólaferð á Sólmundarhöfða

Elstu börnin nýttu góða veðrið í dag og fóru í hjólaferð á Sólmundarhöfðann. Að sjálfsögðu voru allir með hjálmana sína því allir þekkja mikilvægi þeirra. Síðdegishressingin var tekin með til að eiga lengri tíma í ferðinni.