Slökkviliðið í heimsókn
05.02.2026
Í dag fengum við tvo starfsmenn slökkviliðsins í heimsókn. Þeir spjölluðu við börnin og sýndu þeim myndband sem kennir rétt viðbrögð ef eldur kemur upp. Rætt var um öryggistæki sem þurfa að vera á hverju heimili og nauðsyn þess að kunna að hringja í 112 og kalla eftir hjálp. Börnin voru öll með á hreinu númerið 112. Síðan fengu öll börnin að fara út og skoða Slökkvuliðsbíl á planinu hér fyrir utan.