Sunddegi frestað

Sunddeginum sem vera átti á laugardaginn 19. október er frestað vegna ábendinga um að hann komi inn í vetrarfrí grunnskólanna þar sem margar fjölskyldur skipuleggja samveru sína saman. Ný dagsetning sett inn fljótlega.  

Myndir frá Heilsuskokkinu

Myndaalbúm frá Heilsuskokkinu í september eru komnar inn á heimasíðuna okkar og má nálgast neðar á síðunni undir Myndasöfn. http://gardasel.is/um-skolann/myndasafn/

Ómar Orðabelgur - sýning Þjóðleikshúss

Á föstudaginn 11. október er elstu börnunum boðið á farandsýningu Þjóðleikshússins í Tónbergi. Sýningin heitir Ómar orðabelgur og hefst kl: 10.00. Eitt af markmiðum Þjóðleikhússins er að bjóða börnum að upplifa töfra leikhússins, óháð búsetu og...

Námsáætlanir á Lóni, Holti og Vík

Námsáætlanir eru unnir fyrir deildir eða árganga þar sem verkefni fyrir mánuð í einu eða tvo eru sett upp og tengd við námssvið leikskóla. Þar kemur fram hvað er áætlað að vinna, viðburðir og annað sem tengist starfi skólans eða deild. Hér fyrir n...

Matseðill, fréttabréf og dagatal í október

Það eru fallegir haustdagarnir og nú þegar október gengur í garð leikur veðrið enn við okkur. Áfram heldur starfið og hér fyrir neðan má nálgast gögn októbermánaðar. dagatal matseðill  fréttabréf 

Holtið í skógræktinni í dag

Í morgun fóru Holtarar í skógræktina og áttu dásamlegar stundir þar eins og sjá má á myndunum sem má nálgast HÉR 

Íbúaþing um Lærdómssamfélagið Akranes

Íbúaþing um Lærdómssamfélagið Akranes verður 2. október n.k. kl: 17.00 -21.00 í sal Fjölbrautarskólans. Hér er kjörið tækifæri til að hafa áhrif á samfélagið Akranes þar sem horft er til skólamála, frístundar og íþróttastarfs. Foreldrar eru hvatti...

Niðurstaða könnunar vegna kynningarfunda og skipulagsdaga

Gerð var örstutt rafræn könnun meðal foreldra um mikilvægi kynningarfunda að hausti þar sem farið væri yfir skólastarfið og þá sérstaklega deildarstarfið. Einnig með hvaða hætti slík kynning myndi gagnast foreldrum best. Þá var spurt um það fyrirk...

Starfsáætlun 2019-2020

Leikskóla er skylt að vinna starfsáætlun fyrir hvert skólaár og er áætlunin ætluð rekstraraðilum, foreldrum og starfsfólki skóla. Starfsáætlun er til leiðbeiningar og upplýsinga og greinir frá helstu þáttum skólastarfsins, áherslum og innra og ytr...

Nýr starfsmaður

Í dag kom Margrét Ósk Ragnarsdóttir til starfa í Garðaseli og verður í 100 % starfi afleysingar. Hún mun því fara inn á allar deildir skólans og hitta þar börn og foreldra. Við bjóðum Möggu velkomna til okkar.