Vorskólinn í Grundaskóla 2. - 5.mars

Samvinnuverkefnið Brúum bilið milli leik- og grunnskóla hefur það meginmarkmið að tengja skólastigin og undirbúa elstu börnin undir það að fara úr leikskóla í grunnskóla. Innritun í grunnskólanna er lokið og tekur hún mið af skiptingu skólahverfanna á Akranesi, Faxabraut og Þjóðbraut.

Dagana 2. -5. mars er Vorskólinn í Grundaskóla og þangað fara elstu börnin sem innritast í skólann næsta skólaár. Fyrstu bekkingar grunnskólans koma yfir í leikskólann þessa daga.