Umferðardagar 25. -27. september

Dagana 25. - 27. september eru Umferðardagar í Garðaseli. Við ætlum að leggja áherslu á að ræða um nauðsyn endurskinskmerkja þegar dimma tekur og æfa okkur að nota umferðarljós og gangbrautir. Við viljum hvetja foreldra til að taka þátt, grípa tækifærin þegar þau gefast til að minna börnin og sjálf sig á, öryggi í umferðinni er mikilvægt.