Útskrift elstu barna

Útskrift elstu barnanna fimmtudaginn 16. maí var dásamleg. Hópurinn hafði, ásamt kennurum sínum,undirbúið dagskrá með söng og dansi ásamt myndbandi þar sem ýmsum spurningum og vangaveltum var svarað. Fjöldi gesta tók þátt og eftir dagskrána var veislukaffi í Garðaseli í boði foreldra. Takk fyrir dásamlegan dag og til hamingju með þennan flotta hóp.