Útskrift elstu barna

Fimmtudaginn 26. maí var útskriftarhátíð elstu barna. Dagskráin var í sal Grundaskóla en elstu börnin höfðu undirbúið og æft hanaundir dyggri leiðsögn Heiðu og Ragnheiðar, umsjónarkennara. Börnin fengu afhenta útskriftarbókina sína, sem inniheldur verkefni þeirra frá upphafi skólagöngu og þau fengu líka rós í tilefni dagsins. Myndir frá leikskólagöngu barnanna fá börn og foreldrar einnig ásamt myndbandinu sem gert var fyrir útskriftina. Hér má sjá myndir frá útskriftinni.