Tilfærsla á skipulagsdegi 14. apríl

Skipulagsdegi sem vera átti þriðjudaginn 14. apríl n.k. er frestað vegna samkomubanns og tilmæla um fjöldatakmarkanir. Ekki hefði verið hægt að hafa vinnudag með öllu starfsfólki og í ljósi þess er samþykkt að hálfur skipulagsdagur færist til föstudagsins fyrir sumarlokun og þá verði lokað kl: 12.00 og skólinn undirbúinn fyrir lokun.  Þá verði hálfur dagur settur inn þriðjudaginn 4. ágúst eftir sumarlokun og opnað þá kl: 12.00 og um morguninn mæti starfsfólki og geri skólann tilbúinn til opnunar.