Tilfinningarnar mínar - börnin á Vík

Tilfinningar eru flókið fyrirbæri og hvað þá þegar maður er lítill. Að æfa sig að segja hvernig manni líður er verkefni sem allir hafa gott af að takast á við. Hópurinn á Vík hefur verið að vinna með tilfinningar og segja t.d. hvenær þau eru glöð. Fallegar myndir lýsa tilfinningunum þeirra ásamt orðum. Þetta er sýnishorn af skemmtilegum myndum og fleiri eru á vegg á Skála.