Það er gaman í Garðaseli

Það er gaman í Garðaseli núna þegar foreldrasamtölin eru í gangi. Þau eru dýrmæt samvinna og einnig uppskerutími fyrir báða aðila ; fyrir leikskólann að fá að heyra hvað gengur vel og einnig ef eitthvað má bæta og fyrir foreldra að fá að heyra um styrkleika barna sinna, líðan þeirra og aðra mikilvæga þætti í þroska þeirra.

Listsýning í tengslum við Vökudaga er á 2. hæðinni og skoða má listaverk 2018 og 2019 barna utanfrá. 

Sameiginleg söngstund var í morgun þar sem börnin hittust, stór og smá, og sungu saman vinasöngva og annað skemmtilegt.

Í dag var Alþjóðlegi bangsadagurinn og börnin komu með bangsana með í skólann.