Tengjumst í leik (e.Invest in Play) Foreldranámskeið

Þá er komið að því að halda þriðja foreldrafærni námskeið hér í Garðaseli.  Nýtt námskeið hefst 11. september og verður kennt á fimmtudögum frá klukkan 15:00-17:00.  Námskeiðið er kennt í 12 vikur og byggir það á gagnreyndum aðferðum í vinnu með börnum og foreldrum.  Tengjumst í leik er námskeið þar sem foreldrar efla sjálfstraust sitt í foreldrahlutverkinu og skapa tryggð og góð tengsl við börnin sín.  Þannig geta foreldrar betur stutt við náms- og félagsfærni, ásamt því að stuðla að aukinni tilfinningastjórn barna sinna.

"Mér finnst námskeiðið hafa hjálpað mér að takast á við foreldrahlutverkið og ég er öruggari með mig núna"  Ummæli foreldris sem sat námskeiðið á Akranesi.

Þið skráið ykkur fyrir 4. september 2025 með því að nota QR kóðann í auglýsingunni (Best er að stækka myndina svo QR kóðinn verði skýr).

Námskeiðið er ykkur að kostnaðarlausu og vistun er í boði á meðan námskeiðinu stendur.

Við hvetjum ykkur til að nýta þetta einstaka tækifæri.