Takmarkanir í skólastarfi

Vegna hertra sóttvarnarreglna hefur verulega fækkað í skólanum tímabundið fram að páskum. Mörg börn eru komin í páskaleyfi og skólinn hefur fækkað starfsfólki hverju sinni til að uppfylla þann fjölda fullorðinna sem má vera samtímis að störfum. Nýjar reglur munu taka við eftir páskafrí og verður þeim komið til foreldra og starfsfólks eins fljótt og auðið er. 

Þriðjudaginn 6. apríl verður unnið eftir sömu viðmiðum og gilda í dag og hafa foreldrar fengið tölvupóst þar að lútandi.