Sveitaferðin vel heppnuð

Í dag var farið í skemmtilega og vel heppnaða sveitaferð að Bjarteyjarsandi. Þangað hefur skólinn farið í áravís og alltaf vel tekið á móti hópnum og heimsóknin gerð eftirminnileg.

Fallegt veður, lítil lömb að fæðast eða nýfædd og sveitaumhverfið heillaði lítil börn sem fengu svo grillaðar pylsur í hádeginu. 

Sæll og glaður barna- og starfsmannahópur sem kom tilbaka.