Sumarlokun leikskólanna og Sumarskóli 2016

Á fundi skóla- og frístundasviðs 6. janúar 2016 var fjallað um sumarlokanir leikskólanna. Samþykkt var að leikskólarnir verði lokaðir í 5 vikur á komandi sumri  frá 4. júlí  til og með 5. ágúst. Leikskólarnir opna að nýju eftir sumarfrí mánudaginn 8. ágúst. Þá var samþykkt að Sumarskólinn yrði starfræktur í tvær vikur frá 4. júlí til og með 15. júlí og mun hann verða í Akraseli. Skráning í Sumarskólann verður í höndum leikskólastjóra og er bindandi.