Sumarlokun 2018

Samkvæmt niðurstöðu könnunar meðal foreldra er komin afgerandi niðurstaða um dagsetningu sumarlokunar 2018  þar sem 71 foreldri af 76 hefur svarað. Tæplega 61 % foreldra velja tímabilið 9. júlí - 3. ágúst. Foreldrar verða beðnir í byrjun apríl að skrá sumarfrí barna sinna og skólalok elstu barna en áfram verða 5 vikur gjaldfrjálsar ef foreldrar kjósa að lengja frí barna sinna.