Sumarkaffi Garðasels

Á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 21. apríl, kl: 14.00 -16.00, er sumarkaffi foreldrafélags Garðasels. Það er fjáröflun félagsins og rennur allur ágóði til góðra og skemmtilegra verkefna með börnunum. Hvetjum foreldra, fjölskyldur barnanna og velunnara skólans til að mæta í kaffihlaðborð.