Starfsreglur næstu tvær vikur

Á samráðsfundi starfsmannahópsins í Garðaseli í dag var farið yfir og skerpt á þeim viðmiðum sem ný reglugerð setur um starfsemi leikskóla. Farið var yfir helstu þætti með vísan í reglugerð en einnig skoðað hvað er framkvæmanlegt í húsnæði skólans ef halda á úti fullri starfsemi, þ.e.a.s. að öll börn mæti og allir starfsmenn. Hér fyrir neðan má nálgast þessar starfsreglur sem unnið verður eftir næstu tvær vikurnar og áfram gegna foreldrar mikilvægu hlutverki í þessum áætlunum.