Frá árinu 2012 hefur Tónskóli Sigursveins boðið 33 leikskólum í Reykjavík upp á frábært samstarf. Tónskólinn færir nú þessa hugmynd til okkar sem búum á landsbyggðinni og bjóða okkur nú að taka þátt í verkefninu, þ.e. elstu börnum í leikskólum Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðasveitar.
Markmið þessa verkefnis er að halda tónleika þar sem elstu leikskólabörnin eiga sviðið ásamt ungmennum tónlistaskólanna sem munu leika undir söng barnanna.
Árlega er valið íslenskt tónskáld og í ár er Dr. Gunni tónskáld ársins.
Börnin á Vík hafa verið mjög dugleg að æfa sig og geri ég ráð fyrir að þið hafið fengið að heyra brot úr lögunum heima.