Snjór og meiri snjór

Snjór og meiri snjór. Efniviður sem flest börnin elska endalaust. Við búum svo vel að vera í nálægð við hólana á Grundarskólalóðinni og þar er skemmtilegt að renna sér. Eða bara gera engla og snjókarla. Rauðar kinnar,gleði í hjarta og þreyta í kroppnum er vellíðan sem börnum er hollt að upplifa. Myndir á myndasíðu leikskólans.