Skráning á sumarfríi barna og skólalokum elstu barna

Í dag fór heim til foreldra blað þar sem þeir eru beðnir að skrá sumarfrí barna sinna, hvort þau fari í Sumarskólann og einnig hvenær skólalok elstu barnanna verða. Foreldrar  eru beðnir um að skila til leikskólans þessum upplýsingum  í kringum 10.  - 11. apríl . Sumarskólinn 2016 verður í Akraseli vikurnar 4. júlí -15. júlí ( óháð barnafjölda). Mikilvægt er að hafa sem bestu upplýsingar um fjölda barna í Garðaseli sem munu vera í Sumarskólanum því skoða þarf mönnun starfsfólks með hópnum. Skili foreldrar ekki upplýsingum vegna sumarsins er litið svo á að barn sé í fríi í 5 vikna lokun leikskólans og ef um barn í elsta árgangi er að ræða, að skólagöngu barnsins ljúki við sumarlokun.