Skóflustunga nýja leikskólans 5.febrúar

Föstudaginn 5. febrúar n.k. verður skóflustunga tekin að nýja leikskólanum í Skógarhverfinu. Athöfnin verður kl: 10.30 -11.00 og munu börnin á Holti taka þátt í henni þar sem þau verða væntanlegir elstu nemendur nýja skólans þegar hann verður opnaður.