Skipulagsdegi 14. apríl frestað

Skipulagsdagur sem átti að vera þriðjudaginn 14. apríl verður frestað vegna COVID19. Skólinn verður opinn og starfsemi eins og á venjulegum skóladegi. Ákveðið hefur verið að færa þennan dag og loka kl.12 síðasta dag fyrir sumarlokun og opna aftur kl: 12 á þriðjudegi eftir verslunarmannahelgi. Þannig gefst starfsfólki tækifæri til að ganga frá skólanum fyrir lokun og gera hann kláran til opnunar.