Skipulagsdagurinn 21. september

Mánudaginn 21. september var haldinn fyrsti skipulagsdagur vetrarins. Dagurinn var vel nýttur til að skipuleggja skólastarfið, fræðast og miðla þekkingu. Morguninn hófst á því að allar deildir voru með deildarfundi en eftir það voru Ragnheiður, Freyja Hrönn og Björk með fyrsta hluta af foreldranámskeiðinu Tengjums í leik. Það námskeið hefur staðið foreldrum leikskólabarna á Akranesi til boða en núna í vetur ætlum við að fara í gegnum allt námskeiðið með starfsfólki leikskólans. 

Eftir hádegi voru fjórar vinnustofur þar sem kennarar skólans miðluðu þekkingu sinni og reynslu. Anna Lár fór yfir hreyfingu og merkingar í Heilsubók, Rósalind fór yfir málörvun barna, Bryndís fór yfir kennsluefni Blæs sem er vináttu og forvarnarverkefni Barnaheilla gegn einelti og Freyja Hrönn og Ragnheiður fóru yfir Tákn með tali og mikilvægi þess sem tjáskiptaaðferðar. 

Að lokum var farið sameiginlega yfir nokkur mikilvæg atriði og m.a. kynnt nýtt skráningarform á atvika- og slysaskráningu sem  Akraneskaupstaður er að taka upp en kerfið heitir ATVIK.