Sjónvarpsstöð í heimsókn í Garðaseli

Sjónvarpsstöðin Hringbraut verður í heimsókn hjá okkur á morgun eftir hádegið. Við ætlum að taka vel á móti þeim og segja frá starfinu okkar. Ef foreldrar vilja ekki að myndir séu teknar af börnum þeirra mega þeir gjarnan láta vita. Þegar hefur verið farið yfir foreldrasamningana og merkt við þau börn sem þar eru nefnd og mega ekki vera í mynd.