Íþróttadagar í sól og sumaryl

Óhætt er að segja að veðrið leiki við okkur þessa dagana og dagskrá Íþróttaviku nýtur góðs af því. Viðfangsefnin eru fjölbreytt og áhugaverð og ekki skemmir þetta góða veður. Í gær skiptust hóparnir í verkefni fyrir utan Akraneshöllina og síðan í salnum að Jaðarsbökkum. Í dag eru verkefnin þau sömu en hóparnir færa sig á milli svæða. Myndir koma inn fljótlega.