Rauður dagur á morgun og Litlu jólin

Í morgun settum við upp stóra jólatréð á Skála og börnin aðstoðuðu við að skreyta það fallegum ljósum og skrauti sem börnin hafa búið til.   

Á morgun 16. desember eru Litlu jólin og þau byrja kl: 9.30. Allir mæta í einhverju rauðu eða með eitthvað rautt og við syngjum og dönsum saman.

Eftir hádegi koma nokkrir sveinar til okkar og við bjóðum þeim í söngstund með okkur.