Pokar og töskur sem koma inn í skólann

Nú þegar allir verkferlar og hugsanlegir snertifletir eru hugsaðir í leikskólanum er eitt sem þarf að huga betur að og það eru pokar / töskur barnanna sem koma inn í skólann, fara heim og koma aftur. Best er að vera með taupoka sem má skella í þvottavélina þegar heim er komið, það er einfaldast og virkar best. Foreldrar þurfa að tæma töskur heima daglega , taka allt úr þeim ( fatnað) og þrífa þær vel með sápuvatni eða öðrum sótthreinsi. Hjálpumst að með þennan þátt í skólastarfinu