Opin söngstund á Degi leikskólans

Þann 6. febrúar ár hvert er Dagur leikskólans og þann dag halda leikskólar um land allt hátíðlegan með fjölbreyttum hætti. Í Garðaseli var opin söngstund í dag þar sem foreldrum og fjölskyldum barnanna var boðið að koma og taka þátt. Fjölmenni mætti til okkar og gleði ríkjandi þegar allir sungu og dönsuðu saman. Myndbönd eru komin inn á Facebooksíðu skólans og hér má skoða myndir frá söngstundinni.