Nýr aðstoðarskólastjóri ráðinn

Í gær var gengið frá ráðningu Ragnheiðar Dagnýjar Ragnarsdóttur í stöðu aðstoðarskólastjóra í Garðaseli og óskum við henni til hamingju um leið og við óskum nýjum stjórnendum velfarnaðar í störfum sínum.

Staða sérkennslustjóra verður auglýst í byrjun janúar og mun Ragnheiður halda utan um sérkennsluna þangað til sú ráðning hefur gengið í gegn.