Nýja Garðasel vekur athygli

Það er gaman að finna hversu áhugavert skrefið er sem við á Akranesi stigum með byggingu nýja Garðasels.

Við höfum tekið á móti hópi gesta sem skoða skólann og staðfesta að við erum með skólabyggingu sem tekur vel utan um þá sem inn í hana koma og enn frekar utan um börnin og starfsfólkið. Enn frekari heimsóknir eru framundan og við tökum stolt á móti gestum og sýnum skólann okkar.