Náttfata- og búningadagur á Öskudag

Á Öskudaginn, miðvikudaginn 6. mars, er náttfata- og búningadagur í Garðaseli og sameiginleg skemmtun á Skála kl: 9.00. Allir sem vilja og mega fá andlitsmálningu og svo verður dansað saman og haft gaman. Nú er um að gera að finna náttföt, íþróttabúninga eða eitthvað annað skemmtilegt sem til er heima, óþarfi að kaupa nýtt.