Nýr leikskóli - úr fundargerð ráða

Sameiginlegur fundur skipulags- og umhverfisráðs og skóla- og frístundaráðs 2.október 2020 um hönnun leikskóla í Skógahverfi.

Fyrir liggur hugmynd um að leikskólabyggingin fái Svansvottun. Hönnuðir hússins hafa í þeim tilgangi unnið gróft kostnaðarmat, sem sýnir að framkvæmdakostnaður verður um 5% hærri ef þessi leið verður valin, sem einkum skýrist af því að enn sem komið er felst talsverður kostnaður í lærdómsferlinu við að tileinka sér aðferðafræðina bæði í hönnun og framkvæmdum. Skipulags-og umhverfisráð og skóla- og frístundaráð leggja áherslu á að horft sé til umhverfislegra áhrifa við hönnun leikskólans s.s. efnisnotkunar, innivist, hljóðvist, flokkun úrgangs o.fl. Hinsvegar verði ekki farin sú leið að Svansvotta leikskólann meðal annars m.t.t. kostnaðarauka og þess að ákveðið lærdómsferli er í gangi varðandi þá vottun hér á landi.