Matseðill og fréttabréf í nóvember

Nú er nóvember genginn í garð og þá endurnýjast matseðill og fréttabréf sem má nálgast hér fyrir neðan. Íþróttir elstu barna að Jaðarsbökkum falla niður til og með 17. nóvember og engir viðburðir verða í skólanum þennan mánuð.Ekki verður gert dagatal fyrir nóvember þar sem fastir liðir í starfinu halda sér;  hópastarf, valstundir og útivistina - og hver deild setur svo sitt mark á starfið með sínum hópi.