Lúlli löggubangsi kom í heimsókn í Garðasel.

Lögreglan á Vesturlandi kom í heimsókn í Garðasel í vikunni og hittu börnin í árgöngum 2022 og 2021.  Með þeim í för var Lúlli löggubangsi sem aðstoðar börnin við að læra umferðarreglurnar og minna börnin á að nota endurskinsmerki núna þegar er orðið dimmt úti.  Börnin fengu svo að gjöf litabók og endurskinsmerki.  Takk fyrir okkur.