Ljósmyndasýningin á Höfða opnuð

Þriðjudaginn 3. nóvember fóru elstu börnin á Höfða þar sem þau opnuðu ljósmyndasýninguna sína, Það sem auga mitt sér. Vel var tekið á móti börnunum af heimilisfólki og starfsfólki. Börnin sungu nokkur lög og í sumum þeirra var vel tekið undir af heimilisfólkinu sem var glatt og ánægt með heimsóknina.