Fara í efni

Ljósadagur á föstudaginn

Á föstudaginn, 18. janúar,  er ljósadagur í Garðaseli og þá mega börnin koma með vasaljós í leikskólann til að leika með inni og úti. Slökkt verður á ljósum tímabundið og myrkrið fær að ráða för. Nú er um að gera að leita að vasaljósi heima, setja í það rafhlöður og merkja barninu vel. Það má líka koma með ennisljós ef þau eru til heima.