Leikskólinn opnar á þriðjudaginn

Garðasel opnar að nýju eftir sumarfrí þriðjudaginn 8. ágúst kl: 7.30.

Börn mæta samkvæmt sínum dvalartíma þennan dag. Sum börn verða næstu viku í sumarfríi og mæta þá 14. ágúst.

Ný börn sem eru að koma í aðlögun mæta ekki á þriðjudaginn og hafa foreldrar þeirra fengið upplýsingar um skipulag aðlögunar þeirra.

Kynningarfundur með nýjum foreldrum verður miðvikudaginn 9. ágúst. 

  • 2021 börnin kl: 16.00
  • 2022 börnin kl: 18.00