Leikskólastarf hafið að nýju

Leikskólinn tók aftur til starfa eftir sumarlokun þriðjudaginn 4. ágúst. Starfið fór rólega af stað en hluti starfsmanna og barna eru enn í sumarfríi.

Á miðvikudaginn 12. ágúst hefst aðlögun nýrra barna á Lóni og Lind. Á hverju hausti færum við börnin til í húsinu til að rýma fyrir nýjum nemendum. Tilfærsla á deildum verður á þriðjudaginn 11. ágúst. Þann morgun koma börnin á sína gömlu deild og þau sem eru að flytja á aðrar deildir munu gera það fyrir hádegi með kennurunum sínum. Foreldra munu svo sækja börnin á nýju deildina seinnipartinn á þriðjudaginn.