Jólalegt í Garðaseli

Það er orðið jólalegt í Garðaseli og Skálinn fallega skreyttur með ljósum, jólatrjám og listaverkum barna. 

Framundan eru viðburðir tengdir jólum í leikskólanum, s.s. foreldrakaffi á deildum, Rauður dagur og Litlu jólin sem eru á morgun miðvikudaginn 13. desember, 

Fyrsti jólasveinninn kom í nótt en þá var Stekkjastaur á ferðinni og mikill spenningur þessa dagana fyrir þessum sveinum.