Jólasýningin Pönnukakan hennar Grýlu

Þrátt fyrir vonda veðurspá mætti Bernd Ogrydnk til okkar með jólasýninguna Pönnukakan hennar Grýlu. Falleg jólasaga og ótrúlegar leikbrúður skapa yndislega upplifun og skemmtun sem börnin kunna vel að meta. Þau fá að taka þátt í sýningunni og það finnst þeim skemmtilegt. Það var foreldrafélagið sem bauð börnunum á þessa fallegu brúðuleiksýningu. Myndir er hægt að skoða á Facebook-síðu skólans eða í myndasafni leikskólans.