Jólafréttir af Holti

Af okkur á Holti er allt gott að frétta og nóg um að vera hjá okkur þessa dagana. Við erum að jólaföndrast, klára jólagjafir fyrir mömmu og pabba og svo líka bara að njóta aðventunar. Við viljum minna ykkur á jólaskemmtun og aðventukaffið  sem verður hjá okkur á þriðjudaginn 15.des kl.14:30 fyrir 2012 árganginn.  Við dönsum saman í kringum jólatréð og fáum síðan heitt súkkulaði með rjóma og smákökur á eftir. 2011- árgangurinn á Holti tekur þátt í jólatónleikum með Vík í Tónbergi á miðvikudeginum 16. desember kl: 15.30. Aðventukaffi á eftir fyrir tónleikagestina.