Jólaball 2020 úti

Í morgun fórum við út  og héldum Litlu-jólin. Búið var að setja seríur undir skyggnið og jólatréð sett út. Þar sungum við jólalögin, dönsuðum saman og fengum okkar svo piparkökur og mandarínur í lokin. Sérlega notaleg og vel heppnuð stund. Hér fyrir neðan má sjá myndir frá jólaballinu.