Íþróttafjör í Garðaseli

Í gær fóru þrjár elstu deildirnar í rútu og leiðin lá í íþróttahúsið að Vesturgötu.

Þar höfðu Anna Lár og Co sett upp stóra, krefjandi og skemmtilega hreyfibraut um allan salinn. Mikil gleði og ákefð ríkti í salnum þar sem allir voru á fullu í leik og áskorunum, sveitt og rjóð í kinnum. 

Lind og Lón settu upp hreyfibraut úti fyrir yngstu börnin sem hentaði þeirra færni og þroska og elska þau svona verkefni, að klifra renna sér, hoppa og leika.