Það er alltaf líf og fjör í hreyfistundum og sérstaklega gaman að fylgjast með hreyfistundum í salnum og sjá hvernig hægt er að nýta hann fyrir hreyfingu. Í vetur mun Anna Lár íþróttakennari halda utan um hreyfinguna í leikskólanum. Deildirnar Holt, Álfahóll og Hulduhóll eru í hreyfistundum í salnum þar sem sett er upp hreyfibraut og farið í leiki. Elstu börnin á Kalmansvík og Krossvík fara á mánudögum í íþróttahúsið að Jaðarsbökkum en yngstu börnin á Lóni og Lind byrja á að fara í hreyfistundir inn á sinni deild. Til viðbótar nýtum við okkar frábæra útisvæði og skógræktina til frekari hreyfingar.