Í dag gerðum við okkur glaðan dag í tilefni af Hrekkjavökunni sem er á morgun. Börnin mættu í búningum eða náttfötum og hittumst við í salnum, dönsuðum saman og fórum svo í heimsókn á hinar deildarnar. Það var mikið fjör og gaman að fara um leikskólann og hitta systkini og vini sína. Góða helgi til ykkar og farið varlega á Hrekkjavökunni.
p.s. kóngulóna gerðu börnin á Víkinni.